föstudagur, júlí 21, 2006

Öldur ljósvakans

Nú miðdegis hyggst Keðjan venda sínu kvæði í kross og þreyta frumraun sína í útvarpi. Stöðin mun vera Útvarp saga og heitir þátturinn sammarinn og er kenndur við netsíðuna Sammarinn.com. Ekki er vitað nákvæmlega um það hvað þátturinn fjallar, en þó verður að teljast líklegt að umfjöllunarefnið sé fótbolti. Enda svossum fátt annað sem Keðjan er fær að tjá sig um, nema kannski prumpufýlur og Skattalög.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þetta var ömurlegt viðtal. Það kom ekkert vitrænt frá ykkur......
Keðjuklippur

11:13 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home