föstudagur, nóvember 07, 2008

Megas


Ég verð nú að viðurkenna að mig langar í svona gítar.

fimmtudagur, nóvember 06, 2008

Að tékka sig inn



Halló lesandi góður, þá er kominn tími til að tjékka sig inn. En hvernig skyldi heimurinn hafa breyst síðan síðast þegar Kedjufíflið dritaði niður óvéfengjanlegum sannleika í gegnum lyklaborðið?

1. Ólafur Stefánsson lagði skóna á hilluna.

2. Osama Bin Laden varð forseti Bandaríkjana.

3. Íslendingar eru aðeins meira gjaldþrota en síðast.

4. Everton er taplaust.

5. Ég byrjaði að vinna á frístundaheimili þann 4. nóv síðastliðinn.

6. Ég hætti að vinna á frístundaheimili þann 5.nóv síðastliðinn.


Fleira var það ekki. Góðar stundir