miðvikudagur, október 26, 2005

Kjúklingurinn Eddie

Á vegum Nra (national rifle association) er kjúklingur að nafni Eddie sem kennir börnum rétta meðhöndlun á skotvopnum.....







(Eins og sjá má eru Eddie og börnin hinir mestu mátar)

það er ánægjulegt að vita að Bandaríkjamenn eru með þetta allt á hreinu.

Þess má geta að kjúklingsins er að vænta hingað til lands og mun hann byrja á því að heimsækja krakkana í 4. KÞ sem er níu ára bekkur í Fellaskóla og kynna þar rétta meðhöndlun skotvopna.

Krakkarnir voru hæstánægðir að frétta að von væri á kjúklingnum því yfirvofandi ógn frá Sigga stóra væri að
(4.K.Þ í Fellaskóla var hæstánægður með væntanlega komu Eddie)

verða óþolandi þar sem hann kynni ekkert með byssur að fara. Aðeins tímaspursmál væri hvenær hann ætti eftir að ,,blasta einhvern í hausinn" var haft eftir einni stelpunni í bekknum.




þriðjudagur, október 25, 2005

Gifting
















Nú síðastliðin laugardag giftu sig góðvinir Keðjunnar þau Birgir og Ágústa. Þar sem þau eru búsett í Bandaríkjunum um þessar mundir, munu þau taka nafn hans og verða hér eftir herra og frú Chewbacca. Af þessu tilefni langar mig að óska þeim hjónum innilega til hamingju.

Góðan daginn

Jæja, þá er komið að því að kynna sér betur þetta alnet með því að hefja hér með giftusamlegan netferil þar sem stefnan er tekin á það að setja inn stafi sem lesnir eru og jafnframt mynda orð. Orð sem hafa hvert sýna merkingu, því í gegnum menningu sem er sameiginleg upplifun hefur það orðið ofan á að fólk sammælist um hvað sé rétt skilgreining á hljóðum sem koma út úr munnum manna. þessum hljóðum, sem hafa sameiginlega merkingu, er svo raðað saman í ákveðið mynstur svo úr myndast setningar sem er uppröðun orða í ákveðinni röð svo mynda megi sameiginlegan skilning á því sem hver og einn tjáir með hljóðum sínum.

Ef þetta skipulag hefði ekki komið til, væri ef til vill ekkert til sem heitir orð og því síður nokkuð sem heitir setning og þá væri kannski Leitin að eldinum vinsælasta mynd allra tíma.

Það væri nú skrítið......... ha ha ah ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha ha!!!!!!!!