fimmtudagur, september 07, 2006

Kynslóðir

Endrum og sinnum heyrir maður minnst á kynslóðir fyrri tíma. Hipparnir voru friðelskandi flökkukindur sem lifðu taumlausu kynlífi án ábyrgðar. Diskó kynslóðin dansaði næturlangt í gleðivímu líkt og morgundagurinn rynni aldrei upp. Gleðin hélt áfram á eightís tímabilinu þar töffarar og skvísur hlustuðu á tónlist ,,mengaða" af hljóðgervlum sem minna á gamlar ruslatunnur. X kynslóðin þóttist fordómalaus á sama tíma og orð á borð við kúl og ýkt nutu vinsælda.
Í fyrra las ég grein í stúdentablaðinu þar sem Óskar Arnórsson fjallaði um hnyttin máta um þá kynslóð sem ég tel mig tilheyra. Hann kallar hana,,Viðnámslausu kynslóðina". Fædd með silfurskeið í munni, aldrei upplifað annað en góðæri og aldrei þurft að hafa fyrir nokkrum sköpuðum hlut. Kaffihúsaferðir, bíó og fyllerí fjármögnuð með bankalánum sem borguð verða...síðar meir....af mömmu og pabba. Konur nota karla, karlar nota klámefni. Engin bannar, engin skammar, engir rammar og á endanum, ef sódómulíferninu linnir ekki, munum við jafnvel sjá svartan gyðinga homma (T.M).

föstudagur, september 01, 2006

Af yndislegum mönnum.....

Bjarni Þór Pétursson, athafnamaður, ljóðskáld og ástin í mínu lífi tjáir sig á marg-vís-legan hátt á síðunni sólskinsfíflið.blogspot.com. Þar fer maður sem segir einu meira en 5 og aldrei að vita nema eitthvað vit(leysa) leynist í skrifum hans.

Oddur Sturluson iðjuleysingisbróðir, ljóðskáld og kvennabósi af verstu gerð, tjáir sig um eitthvað allt annað en hvunndaginn á síðunni blog.central.is/krossfiskur. Aldrei að vita nema einhver vitleysa leynist í skrifum hans.

Ályktanir

Hér eru nokkrar ályktanir úr ritstjórastól Keðjunnar.

1. Ekkert er að því að konur séu á atvinnumarkaði.
2. Hommar eru til.
3. Svertingjar eru ekki endilega verri en annað fólk.
4. Akranes má (með naumindum) vera til.
5. Keflavík hins vegar ekki.
6. Fallbeygingin á nafninu Ketill er fyndin í þágufalli.
7. Keðjan hefur enga sérstaka skoðun á nokkrum manni sem heitir Jón Sigurðsson.

Góðar stundir